Raforkuspá Íslands 2025 - 2050
Grunnspá
Orkuspáin er samstarfsverkefni Landsnets, Raforkueftirlitsins og Umhverfis- og orkustofnunar.
Helstu niðurstöður um raforku
Almenn raforkunotkun er að vaxa hægar en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Þar veldur helst betri orkunýting, hægari orkuskipti og færsla á landeldi yfir í stórnotkun.
Stórnotkun í hægari vexti en í seinustu spám bæði Orkustofnunar (nú Umhverfis- og orkustofnunar) og Landsnets.
Framboð raforku og eftirspurn
Framboð er í hægum vexti og sett fram með fyrirvara um óvissu vegna leyfisveitinga – enn óvissa um vindorku. Tvísýnt um hvort framboð mæti eftirspurn til 2030. Myndin tekur hvorki tillit til takmarkana í flutningskerfinu né slæmra vatnsára.
Mögulegt nýtt framboð og eftirspurn fram til ársins 2030
Framboð er í hægum vexti. Tvísýnt um hvort framboð mæti eftirspurn til 2030. Lítið svigrúm til vaxtar.
Söguleg og spáð breyting á almennri notkun frá 2005 til 2050
Sögulega voru helstu breytingar á orkusamsetningu í almennum iðnaði og meiri notkun á heimilum og í þjónustu. Breyting á grunnspá og háspá er mest vegna rafbílavæðingar og stöðugrar aukningar heimila og þjónustu í samræmi við mannfjöldaspá og ferðamannaspá.
Raforkunotkun stórnotenda árin 2005 til 2050
Óstöðugt alþjóðlegt umhverfi og slæm vatnsár draga dilk á eftir sér. Óvissa á alþjóðamörkuðum veldur töluvert meiri óvissu í flokknum en undanfarin ár.
Skipting stórnotkunar árin 2025 og 2050
Samsetning stórnotkunar breytist næstu árin. Vöxtur í matvælaiðnaði og gagnaversiðnaði mun breyta hlutföllum í samsetningu stórnotkunar á Íslandi.
Sjá má þróun heildarraforkunotkunar hér að neðan.
Raforkunotkunarflokkar
Almennar forsendur
Nánari upplýsingar
Finna má nánari upplýsingar um notkunarflokka, framboðsspá og samanburð við fyrri útgáfur í kynningunni.
Veldu tengilinn hér fyrir neðan fyrir orkuskiptaspá.